Námskeiðsáætlun
Að námskeiði loknu eiga nemendur að vera færir að veita faglega dáleiðslumeðferð og aðstoða sína skjólstæðinga í átt að betri líðan með dáleiðslu. Farið verður í eftirfarandi atriði í náminu:
Fyrri helgin 11,12,13, sept
- Hvað er dáleiðsla
- Hvað getur dáleiðsla gert fyrir mig
- Hvernig á að vera faglegur dáleiðari
- Innleiðing, dýpkun, vekja. Búa til sína eigin innleiðingu og prufa hana
- Tillögur (e. suggestions) bæði beinar og óbeinar tillögur og muninn þar á
- Tillögu prófanir
- Skref sem þarf að hafa í huga,
- Forviðtal og hvaða svör þú þarft að fá áður en byrjað er að dáleiða
- Tungumál undirmeðvitundarinnar,
- Myndlíkingar (e. Metaphors)
- Æfingar og spjall
- 6 grunntegundir af dáleiðsluinnleiðingum
- Að þekkja einkenni dáleiðslunnar þegar hún er komin fram (e. trans )
- Mismunandi spurningar eins og Leiðandi og leiðbeinandi spurningar
- Siðferðismál og lagamál
- 8 reglur hugans og hvernig hann flokkar vandamál og lausnir.
- Aðeins farið í að kynna þáttameðferð og svona grunninn þar
- 11 stigin í þáttameðferð Parts therapy
Eftir þessa helgi áttu að vera fær um að veita dáleiðslumeðferð til streitustjórnunar, sofa betur, kveikja neista til að færa fókus yfir á að mega líða betur (já veit að þetta hljómar furðulega en þetta er nauðsynlegt fyrir suma), og að vera komin með tök á tungumáli dáleiðslunnar.