Dáleiðslufélag Íslands var stofnað 21. maí 2001. Fyrsti formaður þess var Ingólfur Sveinsson geðlæknir og Jakob V. Jónasson geðlæknir er heiðursfélagi frá stofndegi.
Markmið Dáleiðslufélags Íslands er að kynna dáleiðslu almennt, félagsmenn þess og þjónustu þeirra. Að auki eru viðburðir kynntir sem tengjast starfi félagsins eða systursamtaka þess ásamt því að skapa aðgengi að félaginu og margvíslegu efni tengdu því.
Jafnframt er tilgangurinn að tryggja ímynd dáleiðslu og veita aðgang að þeim fagmönnum og þeirri þjónustu sem hægt er að treysta. Allir félagsmenn í Dáleiðslufélagi Íslands hafa langa háskólamenntun að baki og hafa hlotið löggildingu í einhverri þeirri heilbrigðisstétt sem fæst við að færa líðan fólks til betri vegar.
Háskólamenntað heilbrigðistarfsfólk með starfsleyfi frá Landlæknisembættinu sem hefur áhuga á að nota dáleiðslu í starfi sínu getur sótt um aðild að félaginu með því að senda rafpóst á ritari@dfi.is.