Dáleiðslunám fyrir háskólamenntað heilbrigðisstarfsfólk

Faglegt grunnnám með öflugri handleiðslu og stuðningi

Dáleiðslufélag Íslands (DÍ) og Breytt Hugsun bjóða upp á dáleiðslunám fyrir háskólamenntað heilbrigðisstarfsfólk með starfsleyfi frá embætti landlæknis sem vill auka faglega færni sína og bæta við sig öflugum verkfærum til að styðja við skjólstæðinga sína.
Kennt er helgarnar 11-13 september og 2-4 október. Námið er byggt upp þannig að þátttakendur öðlast bæði þekkingu, hæfni og sjálfstraust í að beita dáleiðslu á sínu starfssviði. Mikil áhersla er lögð á fagmennsku, siðfræði, öryggi, hagnýta þjálfun og eftirfylgd. Þátttakendur fá ekki aðeins kennslu, heldur öðlast einnig faglegt bakland og stuðning langt umfram sjálfa kennsluna. Námskeiðið kostar 500.000 kr., en skráning og nánari upplýsingar í netfanginu skraning@dfi.is

Það sem gerir námið einstakt

Tveir mjög reyndir kennarar
leiða námið ásamt reyndu og vel þjálfuðu aðstoðarfólki sem tryggir nána leiðsögn og stuðning.
Nemendur eru aldrei skildir eftir einir með verkefni eða æfingar. Kennarar og aðstoðarfólk eru stöðugt til staðar til að veita handleiðslu, endurgjöf og stuðning í gegnum allt námsferlið.
Traust og öruggt námsumhverfi þar sem þátttakendur fá tækifæri til að þróa færni sína áfram undir faglegri leiðsögn.
Stuðningur og eftirfylgd í heilt ár eftir námskeiðið

Námskeiðið telur sem 60 stunda viðurkennt nám hjá Dáleiðslufélagi Íslands.
Kennt er helgarnar 11 -13 september og aftur 2 -4 október

  • Föstudagur kennsla frá 17 til 22
  • Laugardagur kennsla frá 9 til 18
  • Sunnudagur kennsla frá 9 til 18

Áframhaldandi stuðningur í heilt ár að námi loknu

  • Aðgengi að kennurum
  • Fagleg handleiðsla
  • Stuðningur við innleiðingu aðferðanna í klínísku starfi

Skráning og kostnaður.
Námskeiðið kostar 500.000 kr.
Skráning og nánari upplýsingar í netfanginu skraning@dfi.is

Fyrir hverja?
Námið er ætlað háskólamenntuðu heilbrigðisstarfsfólki með starfsleyfi frá embætti landlæknis, svo sem: Sálfræðingum, Læknum, Hjúkrunarfræðingum, Sjúkraþjálfurum, Iðjuþjálfum, Ljósmæðrum, Félagsráðgjöfum, og öðru háskólamenntuðu heilbrigðisstarfsfólki með viðurkenningu frá landlæknisembættinu.

Meira en námskeið – faglegt samfélag
Að námi loknu tekur við heilt ár af stuðningi og handleiðslu. Þátttakendur fá þannig tækifæri til að þróa færni sína áfram með aðgengi að kennurum og faglegu samfélagi sem styður við vöxt, öryggi og fagmennsku.

Þessi færsla var birt undir Fréttir, Námskeið. Bókamerkja beinan tengil.