Aðalfundur 26 febrúar kl 17.00 – Vöruhús tilfinninga

Aðalfundur Dáleiðslufélags Íslands er næstkomandi fimmtudag, 26. febrúar kl. 17.00
að Sálfræðistofunni Höfðabakka. Sjá hér: Um okkur – Sálfræðistofan Höfðabakka

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, en fyrir fundinn verður Ingibjörg Bernhöft með mjög áhugavert erindi. Engar lagabreytingar liggja fyrir en kosið verður til stjórnar. Aðgangur er ókeypis og allir áhugasamir velkomnir. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku svo við getum áætlað veitingar.

—-

Í fyrirlestrinum fer Ingibjörg Bernhöft yfir hvernig vinna má með styrkleika fólks á markvissan og uppbyggilegan hátt, og hvernig það getur aukið seiglu, þrautseigju og skilning á eigin innra landslagi í daglegu lífi.

Erindið byggir meðal annars á hugmyndinni um „vöruhús tilfinninga“, þar sem skoðað er hvernig tilfinningar, minningar, viðhorf og styrkleikar geymast, hvernig þeir móta viðbrögð okkar og hvernig má vinna með þá á meðvitaðri og sjálfstyrkjandi hátt.

Ingibjörg fjallar um hvernig við getum hjálpað fólki að virkja og nota þá styrkleika sem það býr þegar yfir, og styðst þar við þekkingu og verkfæri úr VIA‑styrkleikalíkaninu. Rannsóknir í jákvæðri sálfræði benda til að 70–80% fólks þekki ekki eigin styrkleika, og jafnvel þeir sem kunna nöfn þeirra geta lent í því að ofnota einn styrkleika, sem gerir hann að veikleika.

Í fyrirlestrinum verður farið í hvernig birtingarmyndir þessara mynstra verða til, hvernig „vöruhús tilfinninga“ hjálpar til við að skoða þetta á skýran og mildan hátt, og hvernig má blanda saman jákvæðri sálfræði og dáleiðslu til að hjálpa fólki að:

  • öðlast skýrari innsýn í eigin innri kerfi,
  • virkja styrkleika á réttum tíma,
  • og móta skýra og lifandi mynd af eigin framtíð og bestu leiðinni þangað.

—-

Það er mikið ánægjuefni að tveir félagar ætla að ganga inn í stjórn og það er pláss fyrir fleiri sem brenna fyrir framgangi félagsins. Ég hef nú gengt formennsku í tvö tveggja ára tímabil og er fús til að ljúka því þriðja ef áhugi er fyrir því. Eftir það mega aðrir taka við.

Í ár verður félagið okkar 25 ára, en auðvitað nær saga okkar lengra aftur. Það gengur vel með afmælisráðstefnuna sem verður í Norræna húsinu 29. maí næstkomandi. Það hefur fjölgað ögn í hópi fyrirlesara sem eru nú tólf talsins og rúmlega 30 gestir eru skráðir nú þegar. Meiri hluti þeirra er erlendis frá. Mörg þeirra eru mjög reynslumikil á sínu sviði og með mjög áhugaverð sérsvið í dáleiðslu. Ætla má að ráðstefnan verði upp bókuð sem og hátíðarkvöldverðurinn sem verður á Hotel Holti.

Sjá hér: Conference 2026 | Dáleiðslufélag Íslands

Þessi færsla var birt undir Fréttir, Fundir, Fyrirlestrar. Bókamerkja beinan tengil.