Dáleiðsla í meðferð, sem er unnin af fagfólki, á ekkert skylt við sviðsdáleiðslu eða þær „töfralausnir“ sem sumir lofa. Dáleiðslan er samvinna meðferðaraðila og skjólstæðings. Ekki er hægt að láta fólk gera neitt sem er því á móti skapi í dáleiðslu. Það er sjálft við stjórn, en ekki undir stjórn meðferðaraðilans.
Dáleiðslan er jafnan ekki skilgreind sem sjálfstæð meðferð, henni er frekar hægt að lýsa sem aðferð eða tækni sem nýtist í annarri og heildstæðari meðferð.
Dáleiðsla felur í sér notkun svokallaðra sefjana sem gefnar eru í kjölfar innleiðslu og einkennist oft af góðri slökun, einbeitingu og innlifun. Sefjanirnar snúa að því að upplifa breytingar á skyni, skynjun, hugsunum og hegðun. Flestir upplifa dáleiðslu sem þægilega.
Við dáleiðsluna verður breyting á vitundarástandi skjólstæðingsins í þá átt að einbeiting og sefnæmi eflast, þannig að viðkomandi á auðveldara með að tileinka sér ný og breytt viðhorf og breyta hegðun sinni. Með nýjum viðhorfum opnast sýn á leiðina út úr vandanum.
Dáleiðsla nýtist mjög vel sem þáttur í meðferð við margs konar vandamál, svo sem við kvíða, depurð, sársauka, ýmiss konar ávana, meltingarkvillum eins og iðraólgu, auk annars.
Einungis þeir sem hafa full réttindi og þjálfun eiga að nota dáleiðslu í meðferðarskyni.