Nýtt merki félagsins

Dáleiðslufélag Íslands er komið með nýtt merki. Hönnuður var Þuríður Elvu Hannesdóttir.

Nýtt merki Dáleiðslufélags Íslands er þjóðlegt og er að sumu leyti sprottið úr samræðum við félaga okkar í erlendu félögunum ASCH, ISH og ESH.  Mörg þeirra spyrja fyrst um eldfjöllin okkar  og merkið tengir mjög við þá mynd. Fánalitirnir undirstrika svo hver við erum og hvar við erum.

Í merkinu má glöggt sjá stórt „Í“ en svo er þríhyrningurinn utan um það auðvitað stórt „D“ á grísku, þannig að DÍ er innifalið í merkinu, textinn undir merkinu skýrir þá merkingun enn frekar.

Þessi færsla var birt undir Fréttir. Bókamerkja beinan tengil.