Dagur dáleiðslunnar 2026            

Föstudaginn 30. október kl. 17.00
Í sal Sálfræðistofunnar Höfðabakka að Höfðabakka 9D

Dagur dáleiðslunnar er haldinn árlega á vegum Dáleiðslufélags Íslands sem er félag fagfólks í heilbrigðisvísindum sem nýtir dáleiðslu til að auka árangur meðferðar sinnar. Félagið leggur áherslu á að nota gagnreyndar aðferðir og að kynna dáleiðslufræðin út frá nýjustu rannsóknum hverju sinni.

Á degi dáleiðslunnar minnast félagsmenn Jakob V. Jónassonar, geðlæknis og frumkvöðuls í notkun og kynningu dáleiðslu hér á landi, en hann fæddist 28. október 1920. Í kringum hann varð til hópur sem stofnaði Dáleiðslufélag Íslands fyrir 25 árum síðan. Í tilefni þess var haldið vegleg alþjóðleg afmælisráðstefna í vor sem tókst afar vel.

Við ljúkum nú afmælisárinu þannig að Þorsteinn Guðmundsson, leikari og sálfræðingur, kemur og flytur stuttan fyrirlestur um hugarmyndir.

Leikhús hugans


Erindið er opið öllu háskólamenntuðu heilbrigðisstarfsfólki, en að því loknu eru ókeypis veitingar í boði. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrirfram svo að hægt sé að áætla fjölda gesta. Félagar ættu endilega að bjóða gestum með sér. Gleðjumst á þessum hátíðisdegi.

Þessi færsla var birt undir Fréttir, Fundir, Fyrirlestrar. Bókamerkja beinan tengil.